Hraunljós
Handgerð íslensk kerti þar sem neðsti hluti er úr náttúrulegu vaxi blönduðu íslenskri gjósku. Innblásin af litum og áferð íslenskra hraunsvæða þar sem eldur, jörð og náttúra mætast.

Bláhraun
23 cm á hæð.
Blár litur hafsins mætir köldum hraunbjörgum

Jarðmosi
23 cm á hæð
Hlýr jarðlitur úr djúpum eldfjallanna

Hraunmosi
23 cm á hæð
Grænn mosi sem breiðir sig yfir nýstorknað hraun

Kvikuhraun
23 cm á hæð
Glóandi kvika stöðvuð í miðju rennsli
Til að panta kerti má hafa samband í síma 897 2612 eða senda tölvupóst á kg(hjá)kertasmidjan.is
