Kertasmiðjan – Handgerð kerti frá Suðurlandi
Í yfir 30 ár hefur Kertasmiðjan framleitt fjölbreytt úrval kerta fyrir heimili, fyrirtæki og viðburði. Í dag leggjum við áherslu á kerti sem endurspegla íslenska náttúru og sögur landsins – hvort sem það er litur, áferð eða hráefni.
Allar vörur eru handgerðar á Suðurlandi úr vönduðu vaxi og í sumum tilvikum blandað íslenskri gjósku til að skapa einstaka áferð. Þú finnur kertin okkar í verslunum víða um land, en hér í vefversluninni er stærsta úrvalið.
